Íþróttadrykkur fyrir hámarksframmistöðu á æfingum og í keppni
Vitargo + Electrolyte er hannaður til að styðja við vökvajafnvægi, bæta upp rafvakasölt (elektrólýta) og hjálpa til við að viðhalda bestu mögulegri frammistöðu á æfingum og í keppni.
Vitargo + Electrolyte hentar sérstaklega vel fyrir íþróttafólk sem stundar úthalds- og álagsíþróttir ss. langhlaupara, crossfit-iðkendur, hjólreiðafólk og þríþrautarfólk. Drykkurinn hentar sérstaklega til að endurnýja rafvakasölt við mikið vökvatap og til að draga úr hættu á ofþornun og viðhalda eðlilegri vöðva- og taugastarfsemi við langvarandi áreynslu.